Um Batteríið
Starfsemin
Batteríið arkitektar ehf. er skapandi þekkingarfyrirtæki með yfir 35 ára reynslu og sérþekkingu á sviði byggðaskipulags og mannvirkjahönnunar. Fyrirtækið var stofnað árið 1988 og starfar sem einkahlutafélag í eigu sex hluthafa. Starfsmannahópurinn samanstendur af vel menntuðu, samhentu og hæfu fagfólki með djúpan metnað fyrir starfi sínu.
Þekking
Sérstaða fyrirtækisins felst í yfirgripsmikilli þekkingu á aðlögun mannvirkja að umhverfi og veðurfari, algildri hönnun og öryggi notenda. Markmiðið er að þessi sérstaða endurspeglist í öllum verkefnum fyrirtækisins ásamt stefnumiðum þess. Mikilvægir þættir í viðleitni fyrirtækising til að veita framúrskarandi þjónustu eru sérhæfing í þrívíðri hönnun með BIM eiginleikum, öflugir innviðir byggðir á SharePoint og alþjóðlegt gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 staðlinum.
Gæði / Sjálfbærni / Öryggi
Batteríið Arkitektar hafa stigið stór skref í átt að sjálfbærri hönnun. Meðal verkefna er ALC – Active Living Centre – við Manitoba háskólann í Kanada sem hefur hlotið LEED Silver vottun. Fyrirtækið er meðal sendiherra Nordic Built átaksins sem hafa gefið fyrirheit um að beita 10 liða sjálfbærum stefnumiðum í sinni hönnun. Einnig hefur fyrirtækið unnið nokkur verkefni samkvæmt BREEAM-staðlinum, bæði í skipulagi og byggingum. Þá hefur fyrirtækið hannað nokkur hús samkvæmt Passivhus staðlinum í Noregi og að lokum hannaði fyrirtækið fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi sem uppfyllir kröfur Svansmerkisins – norræna umhverfiskerfisins.
Eigendur og Stjórnendur
Batteríið Arkitektar ehf. er einkahlutafélag í eigu Guðmundar Ósvaldssonar, byggingarverkfræðings; Jóns Ólafs Ólafssonar, arkitekts og verkefnastjóra MPM; og arkitektanna Sigurðar Einarssonar, Hákonar Inga Sveinbjörnssonar, Sveins Bjarka Þórarinssonar og Þorsteins Aðalbjörnssonar byggingafræðings.
Framkvæmdastjórn félagsins samanstendur af Guðmundi Ósvaldssyni sem framkvæmdastjóra og Sigurði Guðmundssyni, Cand Oecon, sem formanni stjórnar. Aðrir stjórnarmenn eru fjórir eigendur.
Verðlaun
2025
BIG SEE Architecture Award 2025 - Winner
Hótel Jökulsárlón
2018
USITT Architecture Award - Winner
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2017
CISC Steel Design Award, Recreational Facility
University of Manitoba - Active Living Centre
2017
CISC Manitoba/NW Ontario Steel Design Awards
University of Manitoba - Active Living Centre
2016
Local Favorite Award, The Culture Trip
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2016
Best Meeting & Conference Centre in Europe
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2016
NIRSA Outstanding Sports Facility Award
University of Manitoba - Active Living Centre
2016
City of Winnipeg ACCESS Awards for Excellence in Accessible Architectural Design
University of Manitoba - Active Living Centre
2015
The Icelandic Concrete Award - Winner
Íþróttamiðstöð Grindavíkur
2013
The Emirates Glass LEAF Awards - Public Building of the Year - Winner
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2013
WAN Performing Spaces Award - Nomination
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2013
The Mies van der Rohe Award - Winner
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2012
The Icelandic Heating, Ventilation and Sanitary Award - Winner
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2012
The Icelandic Concrete Award - Winner
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2012
The Cultural Award for architecture, Icelandic newspaper DV
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2012
Civic Trust Award in Edinburgh - Winner
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2012
Best public space – Arkitekturmassan Awards
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2012
Best MICE Centre in Northern Europe
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2012
Nordic Lighting Award - Honorable Mention
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
2011
Wayshowing – IIIDAwards
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Okkar Þekking
Við segjum að samvinna sé okkar sérsvið, en við bjóðum upp á meira..
Hönnun Bygginga með Tilliti til Loftslags og Náttúru
Frá árinu 1995 hefur Batteríið Arkitektar framkvæmt sjálfstæðar rannsóknir á sviði aðlögunar mannvirkja að loftslagsskilyrðum
Fyrirtækið hefur aðgang að fremstu sérfræðingum og ráðgjafarþjónusta þeirra á sviði loftslagsaðlögunar, sem er einstakt á Íslandi.
Aðgengismál / Algild Hönnun

Mikilvægi aðgengis er hátt metið af fyrirtækinu og ráðgjöf innan sviðs algildrar hönnunar er framúrskarandi. Batteríið Arkitektar er stoltur höfundur bókarinnar "Aðgengi fyrir alla", fyrsta íslenska handbókin um aðgengi og algilda hönnun.

Vinnuöryggi og Heilbrigði
Batteríið Arkitektar býr yfir forskoti á sviði vinnuöryggis og heilbrigðis.
Starfsmenn fyrirtækisins fá sérstaka þjálfun og hafa tileinkað sér aðferðafræði hönnunar og eftirlits með öryggi á vinnustað.
Verkefnastjórar fyrirtækisins eru þjálfaðir í meðhöndlun vinnuleyfisumsókna og samstarfi við Vinnueftirlitið, sem veitir fyrirtækinu dýrmæta starfsreynslu.
Samstarf Yfir Landamæri

Síðan 2004 hafa Batteríið Arkitektar, ásamt dótturfyrirtækinu TBL Arkitektar, tekið þátt í umfangsmiklu alþjóðlegu samstarfi og lagt fram sérfræðiþekkingu sína í stórum verkefnum á alþjóðavettvangi.

Fyrirtækið hefur meðal annars leitt hönnun á stóru álveri fyrir Alcoa á Íslandi, 28.000 fermetra tónlistar- og ráðstefnuhúsi í Reykjavík með listaverkum eftir Ólaf Elíasson, auk þátttöku í ýmsum samkeppnum og verkefnum í Kanada og Noregi, þar sem það hefur hlotið verðlaun fyrir nýstárlegan arkitektúr.

Þetta samstarf nær yfir ólíka geira, þar á meðal heilbrigðisþjónustu, fjármál og opinbera innviði og sýnir fram á hæfni Batterísins til að starfa með alþjóðlegum fyrirtækjum og sveitarfélögum. Þannig styrkir fyrirtækið stöðu sína í alþjóðlegum arkitektúr og hönnun.

Samkeppnishæfni
Fyrir hönnunarfyrirtæki sem leitast sífellt við standa í fararbroddi er þátttaka í samkeppnum mikilvæg aðferð til þess að vera vakandi fyrir þeim öru breytingum sem eiga sér stað innan fagsins, auk þess sem þeim samkeppnum fylgir óhjákvæmilega þróun nýrra hugmynda og lausna.
Mikilvægustu forsendurnar fyrir samskeppnishæfni fyrirtækisins eru niðurstöður úr þátttöku þess í hönnunarsamkeppnum. Batteríið Arkitektar hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir árangur sinn – bæði hérlendis og erlendis.
Á síðustu 25 árum hefur fyrirtækið tekið þátt í meira en 80 samkeppnum og unnið til meira en 50 verðlauna og viðurkenninga.